Fotbolti.net
28.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Man Utd mætir aftur nýliðum

Man Utd tapaði á móti nýliðum Hull í fyrstu umferðinni en nú verður andstæðingurinn Ipswich

Man Utd tapaði á móti nýliðum Hull í fyrstu umferðinni en nú verður andstæðingurinn Ipswich

Canon

Mynd: EPA

Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst um helgina þar sem Manchester United mun mæta nýliðum annan leikinn í röð.
Umferðin hefst í kvöld þegar lærisveinar Enzo Maresca hjá Manchester City heimsækja Crystal Palace. Flautað verður til leiks á Selhurst Park í Lundúnum klukkan 19:00.

Liverpool tekur á móti Nottingham Forest í hádegisleiknum á Anfield á morgun þar sem Andoni Iraola leitar enn að sínum fyrsta deildarsigri sem stjóri Liverpool.

Tveir leikir hefjast klukkan 14:00. Bournemouth fær Everton í heimsókn á meðan nýliðarnir Coventry City og Hull City eigast við. Tottenham og Newcastle ljúka síðan laugardeginum á Tottenham Hotspur-leikvanginum í Lundúnum.

Fjórir leikir fara fram á sunnudag og hefjast þrír þeirra klukkan 13:00. Chelsea mætir Brighton, Leeds tekur á móti Brentford og Sunderland fær Fulham, undir stjórn Alvaro Arbeloa, í heimsókn.

Klukkan 15:30 tekur Manchester United á móti Ipswich Town. Þetta er annar leikurinn í röð sem United mætir nýliðum en liðið tapaði 2-0 fyrir Hull City í fyrstu umferðinni.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
19:00 Crystal Palace - Man City

Laugardagur:
11:30 Liverpool - Nott. Forest
14:00 Bournemouth - Everton
14:00 Coventry - Hull City
16:30 Tottenham - Newcastle

Sunnudagur:
13:00 Chelsea - Brighton
13:00 Leeds - Brentford
13:00 Sunderland - Fulham
15:30 Man Utd - Ipswich Town

Mánudagur:
19:00 Aston Villa - Arsenal

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.