28.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Frá Bayern til Espanyol (Staðfest)

Mynd: Espanyol

Mynd: Espanyol
Spænski vængmaðurinn Bryan Zaragoza er mættur til Espanyol á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München.
Hinn 24 ára gamli Zaragoza var keyptur til Bayern sumarið 2023 en samkomulagið gerði ráð fyrir að hann léki áfram með Granada næsta tímabil áður en hann héldi til Þýskalands.
Meiðsli Kingsley Coman urðu hins vegar til þess að Bayern flýtti komu hans og fékk Zaragoza til félagsins í janúar 2024. Vængmaðurinn var ekki tilbúinn í þetta stóra stökk og lék aðeins sjö leiki fyrir þýska stórveldið.
Síðan þá hefur Zaragoza verið lánaður til Osasuna, Celta Vigo og nú síðast Roma. Hann er nú kominn til Espanyol á láni út tímabilið en kaupskylda er í samningnum.
Espanyol hefur unnið einn leik og tapað einum í La Liga á tímabilinu.

Bryan Zaragoza, un rebel més ?? pic.twitter.com/9MWpp8iwtm
— RCD Espanyol de Barcelona (@RCDEspanyol) August 27, 2026