28.08.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Juventus leiðir baráttuna um Kessie

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus er í bílstjóra sætinu um Franck Kessie, fyrrum leikmann Barcelona og AC Milan, en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Kessie er 29 ára varnarsinnaður miðjumaður sem lék síðast með Al Ahli í Sádi-Arabíu. Samningur hans við félagið rann út í sumar og hefur hann verið að skoða möguleika sína undanfarna vikur.
Juventus hefur lagt mikla áherslu á að fá Kessie til félagsins og ætlar nú að taka viðræðurnar á næsta stig. Félagið vill ekki missa forskot sitt í baráttunni um miðjumanninn eftir að hafa átt í viðræðum við hann undanfarnar vikur, enda er hann aðalskotmark Juventus.
Kessie á að baki 106 A-landsleiki og sextán mörk fyrir Fílabeinsströndina en hann varð Afríkumeistari með landsliðinu í byrjun árs 2024.
Ferilskrá hans með félagsliðum er einnig glæsileg en Kessie hefur leikið með Atalanta, Milan og Barcelona. Hann varð ítalskur meistari með Milan árið 2022 og vann spænsku deildina með Börsungum ári síðar.