Fotbolti.net
28.08.26 - 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd boðið að kaupa Tosin

Man Utd boðið að kaupa Tosin
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur boðið Manchester United að kaupa varnarmanninn Tosin Adarabioyo.

Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn var ekki í leikmannahópi Chelsea gegn Fulham í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Eftir komu Maxence Lacroix er líklegt að hlutverk Tosin hjá Chelsea verði mjög takmarkað.
Man Utd er með þá Harry Maguire, Lisandro Martínez, Leny Yoro, Ayden Heaven og Matthijs de Ligt sem kosti í hjarta varnarinnar. De Ligt hefur hins vegar ekki spilað síðan í nóvember á síðasta ári.

United hefur þá sýnt Josh Acheampong, samherja Tosin hjá Chelsea, áhuga. Chelsea vill hins vegar ekki missa Acheampong.

United hefur einnig verið orðað við Taylor Harwood-Bellis sem spilar með Southampton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.