Fotbolti.net
28.08.26 - 20:56
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu markið: Hákon með sturlað mark í grátlegu jafntefli gegn PSG

Hákon skorar markið geggjaða.

Hákon skorar markið geggjaða.

Canon

Mynd: EPA

Lille 2 - 2 Paris Saint Germain
1-0 Hákon Arnar Haraldsson ('21 )
2-0 Dilane Bakwa ('84 )
2-1 Vitinha ('90 )
2-2 Marquinhos ('90+4 )

Lille gerði jafntefli við Evrópumeistara Paris Saint-Germain 2-2 í frönsku deildinni í kvöld. Hákon Arnar Haraldsson skoraði í fyrri hálfleik eftir frábæran undirbúning Olivier Giroud en markið má sjá hér að neðan.

Hákon kom Lille yfir eftir 20 mínútna leik með hreint geggjuðu skoti frá hliðarlínunni. Stórglæsilegt mark eftir frábæra samvinnu hans og reynsluboltans Giroud.

Auk þess að skora þetta glæsimark átti Hákon algjörlega frábæran leik og var út um allan völl. Hann var tekinn af velli á 80. mínútu og var klappað lof í lófa.

Kantmaðurinn Dilane Bakwatvöfaldaði forystu Lille með frábæru skoti úr teignum í lok leiks en hann kom til félagsins í vikunni á lánssamningi frá Nottingham Forest út tímabilið.

PSG hafði þó tíma til að fá eitthvað úr leiknum og enn eitt glæsimarkið kom liðinu á bragðið. Vitinha smurði boltanum við samskeytin. Þegar mínúta var komin framyfir uppbótartíma kom svo 2-2 jöfnunarmarkið þegar Marquinhos skoraði með skalla.

Lille er með fjögur stig eftir tvo leiki en PSG hefur gert jafntefli í báðum sínum leikjum.

Sjáðu markið: Hákon með sturlað mark í grátlegu jafntefli gegn PSG
Canon

Mynd: EPA

Sjáðu markið: Hákon með sturlað mark í grátlegu jafntefli gegn PSG
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.