Fotbolti.net
28.08.26 - 15:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skotmark Liverpool fer til Villa

Á leið til Aston Villa.

Á leið til Aston Villa.

Canon

Mynd: EPA

Sóknarmaðurinn Ibrahim Mbaye er á leið til Aston Villa frá PSG. Það er David Ornstein hjá The Athletic sem greinir frá.

Mbaye er 18 ára kantmaður sem er sagður kosta um 55 milljónir evra. Liverpool hafði áhuga á Mbaye fyrr í sumar en hann virðist á leið til Aston Villa.

Samband ráðamannanna Nassef Sawiris hjá Aston Villa og Nasser Al-Khelaifi hjá PSG er sagt hafa spilað stórt hlutverk í viðræðunum.
Hann er fæddur í Frakklandi en hefur spilað 15 landsleiki fyrir Senegal. Tvö ár eru frá því að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir PSG. Hann hefur spilað 42 leiki fyrir aðalliðið, skorað fjögur mörk og lagt upp fjögur. Hann byrjaði tíu leiki í frönsku úrvalsdeildinni og einn í Meistaradeildinni á síðasta tímabili.

Aston Villa hefur verið orðað við annan sóknarmann, Rafael Leao, en útlit er fyrir að kaupin á Mbaye verði til þess að Leao fari frekar til Galatasaray.

Aston Villa er einnig að klára kaup á Nicolas Jackson frá Chelsea og Ollie Watkins er á förum til Al Hilal.


Með Senegölum á HM.

Með Senegölum á HM.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.