Fotbolti.net
28.08.26 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ward-Prowse heim til Southampton (Staðfest)

Ward-Prowse heim til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

James Ward-Prowse er kominn heim til Southampton eftir að hafa verið á mála hjá West Ham undanfarin ár.

Ward-Prowse er 31 árs enskur miðjumaður sem hefur spilað 410 leiki fyrir Dýrlingana og skrifar undir tveggja ára samning.

Hann fór til West Ham árið 2023 og var þaðan lánaður til Nottingahm Forest. Hann var ekki í náðinni hjá Nuno Espirito Santo sem er stjóri West Ham.
„Þetta er frekar óraunverulegt. Síðustu dagar hafa verið stressandi, en ég er hæstánægður að vera kominn til baka og það verður sérstakt að klæðast aftur rauðu og hvítu treyjunni," segir Ward-Prowse. „Þetta er staðurinn sem ég kalla heima."

West Ham greiddi Southampton 30 milljónir punda fyrir þremur árum og er sagt að hann kosti nú undir einni milljón punda.

Southampton mætir Millwall í Championship-deildinni á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.