28.09.04 - 15:56
Maggi Gylfa og Rógvi Jakobsen til KR (Staðfest)

Rógvi Jakobsen

Rógvi Jakobsen

Eins og við greindum frá í morgun var Magnús Gylfason á leiðinni frá ÍBV og á fast land en hann skrifaði rétt í þessu undir samning við sitt gamla félag KR. Vesturbæjarliðið tilkynnti á sama tíma um kaup á færeyska landsliðsmanninum Rógva Jakobsen sem lék með HB í heimalandi sínu.
Þessar fréttir eru mikið fagnaðarefni fyrir KR enda er Magnús án efa ein allra besti þjálfari landsins. Hann tekur við af Willum Þór Þórssyni sem lét af störfum eftir slakt gengi á tímabilinu.
Rógvi gerði tveggja ára samning við KR með möguleika á framlengingu á honum. Spennandi verður að fylgjast með því hvort Magnús fái fleiri leikmenn til liðsins og ekki síður spennandi að sjá hvort einhverjir fari frá félaginu.
Fréttaritarar Fótbolta.net eru á blaðamannafundinum sem stendur yfir og koma inn myndir síðar í dag. Auk þess koma inn viðtöl viðtöl við þá félaga, Magnús Gylfason og Rógva Jakobsen.