28.09.04 - 17:26
Djorkaeff til Blackburn (Staðfest)

Djorkaeff til hægri fagnar marki með Bolton

Djorkaeff til hægri fagnar marki með Bolton

Youri Djorkaeff hefur skrifað undir stuttan samning við Blackburn Rovers. Samningurinn gildir þangað til félagaskiptaglugginn opnar aftur í janúar og þá munu báðir aðilar meta stöðuna. Djorkaeff eru fyrstu kaup Mark Hughes sem kom frá Birmignham á dögunum en frakkinn hætti hjá Bolton eftir síðasta tímabil.
"Youri er einmitt leikmaðurinn sem við vorum að leita að sem getur gert gæfumuninn" sagði Hughes um Djorkaeff. Hann var reyndar nálægt því að ganga til liðs við Fulham í síðustu viku en á endanum strönduðu samningaviðræður við hann vegna launakrafa leikmannsins.
Athyglivert verður að sjá hvort Djorkaeff nái að sýna góða takta hjá nýja liðinu en hann er orðinn 36 ára gamall. Hann segir sjálfur að hann geti spilað vel í tvö ár til viðbótar en það er eittvað sem tíminn einn mun leiða í ljós.