28.09.26 - 19:56
Brynjar Ingi Erluson
Nefnir veikasta hlekkinn í liðinu - „Vonlaust dæmi“

Van Hecke er ekki í uppáhaldi hjá Janssen

Mynd: EPA

Hollenski spekingurinn Theo Janssen hefur bent á þann leikmann sem hann telur vera veikasta hlekkinn í hollenska landsliðinu, en hann ræddi það í þættinum Rondo á ZiggoSport.
Hollendingar gerðu 1-1 jafntefli við Þýskaland í fyrsta leik sínum í Þjóðadeildinni, þar sem þeir voru heilt yfir betri aðilinn, og fylgdu því síðan eftir með 2-1 sigri á Serbíu.
Þrátt fyrir góð úrslit er Janssen ósáttur við einn leikmann sem hann telur einfaldlega ekki nógu góðan fyrir byrjunarlið Hollands.
„Það sást svolítið í síðasta leik að landsliðið byggir upp sóknir á þremur mönnum: (Jan Paul) Van Hecke, (Virgil) Van Dijk og (Micky) Van de Ven. Það er augljóst þegar þú horfir á liðið spila.“
„En þá byrjar maður að horfa á hlutverk Van Hecke og maður heyrir mjög fáa ræða þetta, en hann er lang veikasti hlekkurinn í hollenska liðinu, bæði á boltanum og varnarlega.“
„Hann spilar mörgum einföldum sendingum, keyrir ekki fram og sýnir lítið frumkvæði. Hann á það mikið til að vera bara í miðri vörn og það er vandamálið með hann.“
„Um leið og hann þarf að spila út á vængina, því Dumfries er þegar lagður af stað, þá er hann mjög brothættur. Hann er hægur og tímasetningin ekki alltaf góð. Þetta er eitthvað sem stendur upp úr í þessu. Hann gefur boltann alltof oft frá sér þar sem hann reynir tíu til fimmtán sendingar í gegnum miðjuna,“ sagði Janssen.
Van Hecke tapaði síðan boltanum á hættulegum stað undir lok leiksins gegn Serbum þegar hann reyndi að spila út úr eigin teig.
„Bara í alvöru, hvað ertu að spá? Þessi bolti verður að að fara á framherjann, en þá vill hann frekar byggja upp spil. Ef Timber er heill heilsu þá verður Xavi að setja hann strax inn í liðið. Þetta Dumfries-Van Hecke dæmi er vonlaust,“ sagði Janssen.