
Fylkismenn hafa fengið liðsstyrk en Ólafur V. Júlíusson hefur fengið félagaskipti til þeirra frá HK. Ólafur sem er 25 ára leikur ýmist á miðjunni eða sókninni en hann spilaði alla 18 leiki HK í 1.deildinni í sumar og skoraði tvö mörk. Hann hefur æft með Fylki undanfarnar vikur og hefur núna fengið félagaskipti yfir til Árbæjarliðsins.