28.11.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Perry kominn til Charlton. (Staðfest)

Chris Perry í baráttunni.


Chris Perry í baráttunni.

Charlton hefur komist að samkomulagi við Tottenham um kaupverð á varnarmanninum Chris Perry. Reyndar hefur Perry verið í láni hjá Charlton í allan vetur á meðan Paul Konchesky leikmaður Charlton hefur verið í láni hjá Tottenham. Talið er líklegt að Konchesky klári þó leiktíðina með Tottenham og framlengi núverandi lánssamning sem er til 13.desember. Chris Perry kom til Tottenham frá Wimbledon árið 1999 fyrir 4.milljónir punda og lék alls 146 leiki með Spurs og skorað í þeim fjögur mörk. Hann var ekki í náðinni hjá Glenn Hoddle í byrjun leiktíðar og fór því til Charlton á láni til að byrja með. Þar hefur hann spilað sig inn í liðið og leikið 9 leik í úrvalsdeildinni það sem af er tímabili.
