Fotbolti.net
29.01.04 - 00:00

Paul Jones til Wolves (Staðfest)

Jones í búningi Liverpool

Jones í búningi Liverpool

Canon
Wolves hafa staðfest kaupin á Paul Jones sem var á mála hjá Southmapton á 250.000 pund. Hann var reyndar í láni hjá Liverpool en er farinn þaðan og mættur á Molineux en hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning.
Þessi 36 ára gamli velski landsliðsmaður fór í læknisskoðun í gær og mun nú berjast við Michael Oakes um markmannsstöðuna en Matt Murray sem er meðal annars í U-21 árs liði Englands er meiddur og verður frá í nokkra mánuði.

Þetta er í þriðja skipti sem Dave Jones stjóri Úlfanna kaupir Jones! Hann spilaði með Wolves frá 1991-1996 og Jones keypti hann líka til Stockport og Southampton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.