Trent á barmi þess að semja við Real Madrid - Frimpong og Davies orðaðir við Liverpool - Aina orðaður við Man City
   mið 29. janúar 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik getur unnið Fótbolta.net mótið í fimmta sinn - ÍA í fyrsta
Skagamenn.
Skagamenn.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Blikar.
Blikar.
Mynd: Eyþór Árnason
Úrslitaleikurinn í A-deild Fótbolta.net mótsins fer fram á morgun fimmtudag á Kópagsvelli en þar mætast Breiðablik og ÍA. Leikurinn verður klukkan 18:00 á Kópavogsvelli.

Frítt er inn á völlinn en leikurinn verður einnig í beinni á YouTube rás BlikarTV.

Breiðablik hefur fjórum sinnum unnið Fótbolta.net mótið en ÍA á möguleika á að vinna það í fyrsta sinn.

Sigurvegarar Fótbolta.net-mótsins frá upphafi:
2011: Keflavík
2012: Breiðablik
2013: Breiðablik
2014: Stjarnan
2015: Breiðablik
2016: ÍBV
2017: FH
2018: Stjarnan
2019: Breiðablik

Leið liðanna í úrslitaleikinn: (af blikar.is)

Riðill 1 – Breiðablik 9 stig.
HK – Breiðablik 1:6
Breiðablik – ÍBV 2:0
FH – Breiðablik 1:4

Riðill 2 – ÍA 5 stig.
ÍA – Stjarnan 2:2
ÍA – Grindavík 2:0
ÍA – Grótta 3:3

-----
Úrslitaleikur - Fimmtudagur
18:00 Breiðablik - ÍA (Kópavogsvöllur)

Leikur um 3. sæti - Laugardagur
11:30 Stjarnan - ÍBV (Samsung-völlurinn)

Leikur um 5. sæti - Laugardagur
11:15 HK - Grótta (Kórinn)

Leikur um 7. sæti - Laugardagur
10:45 FH - Grindavík (Skessan)
Athugasemdir
banner
banner
banner