Fotbolti.net
29.01.25 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hallur Húni framlengir við Hauka

Hallur Húni framlengir við Hauka
Canon

Mynd: Haukar

Hallur Húni Þorsteinsson hefur skrifað undir nýjan samning við Hauka. Samningurinn gildir til næstu tveggja ára.
Hallur er fæddur árið 2003 og er uppalinn í Haukum. Hann lék sinn fyrrsta leik fyrir félagið árið 2019 en gekk til liðs við Fylki árið 2021.

Hann snéri aftur heim árið 2023. Hann kom við sögu í 16 leikjum í 2. deild síðasta sumar þar sem Haukar höfnuðu í 6. sæti.

Hann hefur leikið 61 leik á ferlinum og skorað 3 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.