Fotbolti.net
29.01.25 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Napoli hafnaði kauptilboði í Osimhen

Napoli hafnaði kauptilboði í Osimhen
Canon

Mynd: Getty Images

Il Corriere dello Sport segir að Napoli hafi hafnað 65 milljóna evra kauptilboði frá Galatasaray í Victor Osimhen.

Osimhen er hjá Galatasaray á lánssamningi og hefur nígeríski markahrókurinn skorað 16 mörk í 20 leikjum í tyrknesku deildinni og Evrópudeildinni.

Osimhen er með 75 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum, sem Galatasaray getur nýtt sér í þessum glugga og önnur félög í næsta sumarglugga. Napoli ætlar ekki að selja hann fyrir lægri upphæð.
Osimhen er 26 ára og hjálpaði Napoli að vinna ítalska meistaratitilinn 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.