Fotbolti.net
13.09.26 - 18:30
Guðmundur Jónasson

Mikael og Donni: Þetta er bara ævintýri

Hamrarnir sigruðu 5.deildina í gærkvöldi

Auglýsing
Mikael Freyr Rúnarsson og Sigurður Donys Sigurðsson þjálfarar Hamrana.

Mikael Freyr Rúnarsson og Sigurður Donys Sigurðsson þjálfarar Hamrana.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Hamrarnir unnu 2-0 sigur á Skallagrím í úrslitaleik 5.deildar í gær og voru krýndir meistarar. Að sjálfsögðu var fótbolti.net á staðnum og náði þjálfurum Hamrana í viðtal eftir leik.

„Þetta er bara stórkostlegt, markmiðinu náð og þetta er bara ævintýri." sögðu Donni og Mikael um sigurinn á leiknum og þar með deildinni.

Hamrarnir fóru upp um tvær deildir á tveimur árum

„Við eru bara orðlausir, hópurinn og bara allt í kringum þetta verkefni er bara búið að vera geggjað." 

Aðspurðir hvort þeir hafi skoðað Skallagríms liðið eitthvað fyrir leikinn höfðu þeir þetta að segja.

"Við vorum búnir að skoða Skallagrím aðeins og vissum svona nokkurn veginn hvernig þeir væru en þeir mæta vængbrotnir hingað norður og við bara klárum þennan leik." 

Horfandi á framtíðina þá farið þið varla upp um deild þriðja árið í röð?

„Við erum bara rétt að byrja, vonandi vilja liðin í kringum okkur bara aðstoða okkur við þetta og flottir leikmenn koma til okkar og sjá við leggjum mikinn metnað í þetta. Vonandi vilja menn bara koma á KA-svæðið að æfa í staðinn fyrir að fara eitthvað í burtu."

Sturlaður hópur

"Sturlaður hópur bara alveg geggjaður, allir þessir strákar eiga bara hrós skilið þetta er góður kjarni og við verðum bara byggja ofan á þetta." 

Er það bara snemma í háttinn í kvöld og sunnudagurinn tekinn í kirkju á morgun?

"Það verður brjálað partý hjá strákunum og við erum bara fara njóta í kvöld"

Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.