29.01.25 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Van de Ven snýr aftur

Micky van de Ven.

Mynd: Getty Images

Micky van de Ven.

Mynd: Getty Images
Tottenham mætir Elfsborg í lokaumferð Evrópudeildarinnar á morgun. Spurs situr í sjötta sæti en átta efstu liðin munu komast beint í 16-liða úrslitin.
„Við erum öruggir með sigri og jafntefli mun líklega nægja. Það er mjög mikilvæg fyrir okkur að enda í topp átta og létta á leikjaálaginu," segir Ange Postecoglou, stjóri Tottenham.

Mikið hefur verið fjallað um meiðslavandræði Tottenham. Postecoglou getur glaðst yfir því að varnarmaðurinn Micky van de Ven er að snúa aftur. Meiðsli aftan í læri hafa leikið Hollendinginn grátt og hann aðeins spilað níu deildarleiki á tímabili.
„Hann mun fá einhverjar mínútur. Hann hefur átt góða æfingaviku og er í góðu standi," segir Postecoglou.
James Maddison verður frá næstu tvær til þrjár vikurnar vegna meiðsla í kálfa, Pape Sarr og Yves Bissouma eru báðir leikfærir en Cristian Romero er ekki tilbúinn í endurkomu.