Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 29. febrúar 2020 15:25
Aksentije Milisic
„Þeir sem segja Messi ekki bestan vita ekkert um fótbolta"
Mynd: Getty Images
Hollendingurinn Marco Van Basten, hefur tjáð sig um tvo bestu leikmenn heims, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi.

Umræðan endalausa um hvor sé betri knattspyrnumaður hættir aldrei og nú hefur þessi fyrrverandi leikmaður tjáð sig um málið og segir hann að þeir sem telja að Ronaldo sé betri, viti ekkert um fótbolta.

„Cristiano er frábær leikmaður, en þeir sem segja að hann sé betri en Messi vita ekkert um fótbolta, eða þau segja þetta í slæmri trú," sagði Basten.

„Messi er einstakur. Ómögulegt að líkja eftir honum og endurtaka það sem hann hefur gert."

Messi hefur unnið Ballon d'Or sex sinnum gegn fimm skiptum hjá Ronaldo en þeir tveir einokuðu verðlaunin á árunum 2008-2017 þangað til Luka Modric vann árið 2018.


Athugasemdir
banner
banner