Fotbolti.net
15.10.26 - 12:59
Kári Snorrason

Óvissa um fleiri leiki helgarinnar vegna veðurs - „Auðvitað allt í hættu“

Sex leikir eru á dagskrá í Bestu deildinni um helgina.

Sex leikir eru á dagskrá í Bestu deildinni um helgina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Veðurspá helgarinnar hefur sett strik í reikninginn hjá Bestu deildinni þar sem þrír leikir hafa verið færðir fram á föstudag.

Möguleiki er á að fleiri breytingum enda gert ráð fyrir hvassviðri og rigningu um helgina. Þrír leikir eru á dagskrá í Bestu karla á laugardag og einn á sunnudag. Ásamt því eru tveir leikir í Bestu kvenna á sunnudag.

Fótbolti.net ræddi við Birki Sveinsson, mótastjóra KSÍ, um stöðu mála.
Þrír leikir í Bestu færðir fram á föstudag
TENGT EFNI

Þrír leikir í Bestu færðir fram á föstudag

„Við samþykktum sameiginlegar óskir félaganna í þremur leikjum. Ég þykist vita að önnur félög fylgist með stöðu mála. Það er ekkert fast í hendi með hvað verður, menn eru bara að skoða sín mál,“ segir Birkir.

Leikirnir á laugardeginum yrðu þá færðir þar til eftir helgi, eða hvað? „Ég skal ekki með um það segja. En við erum í smá erfiðleikum með að færa fleiri leiki fram á föstudag.“

Aðspurður um hvort að það sé meiri líkur að ná að spila á sunnudeginum í stað laugardagsins segir Birkir alla leikina í hættu. „Það er auðvitað allt í hættu, það er komið haust og við þurfum að fylgjast vel með veðurspám.“

föstudagur 16. október
Besta karla - Efri hluti
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Eikarvöllurinn)

Besta karla - Neðri hluti
17:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)

Besta kvenna - Efri hluti
17:00 Grindavík/Njarðvík-ÍBV (Nettóhöllin - gervigras)

laugardagur 17. október
Besta karla - Efri hluti
14:00 Keflavík-KR (HS Orku völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
14:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)

sunnudagur 18. október
Besta karla - Efri hluti
19:15 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)

Besta kvenna - Efri hluti
14:00 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þróttur R. (Kaplakrikavöllur)
Birkir Sveinsson.

Birkir Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.