Fotbolti.net
15.10.26 - 09:44
Kári Snorrason

Þrír leikir í Bestu færðir fram á föstudag

Leikur Breiðabliks og Víkings verður á morgun.

Leikur Breiðabliks og Víkings verður á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikir í Bestu deild karla og kvenna hafa verið færðir fram á föstudag vegna veðurspár um helgina.

Leikir ÍBV gegn FH og Breiðabliks gegn Víkingi áttu upphaflega að fara fram á laugardag en hafa nú verið færðir fram á föstudag.
Þá hefur leikur Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV í Bestu deild kvenna verið færður af sunnudegi yfir á föstudag. Leikurinn hefur jafnframt verið færður af JBÓ-vellinum á gervigrasið á Nettóvellinum.

Upphaflega átti heil umferð að fara fram á laugardag en vegna spár um storm og rigningu gætu fleiri leikir verið færðir til.

Íslandsmót – Besta deild karla
ÍBV - FH

Var: 17.10.2026 14:00, Hásteinsvöllur
Verður: 16.10.2026 17:00, Hásteinsvöllur

Íslandsmót – Besta deild karla
Breiðablik – Víkingur R

Var: 17.10.2026 19:15, Eikarvöllurinn
Verður: 16.10.2026 19:15, Eikarvöllurinn

Íslandsmót – Besta deild kvenna
Grindavík/Njarðvík - ÍBV

Var: 18.10.2026 14:00, JBÓ völlurinn
Verður: 16.10.2026 17:00, Nettóvöllurinn gervigras


FH heimsækir Hásteinsvöll á morgun í stað laugardags.

FH heimsækir Hásteinsvöll á morgun í stað laugardags.

Canon

Mynd: ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.