29.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Hallur til Fjölnis (Staðfest)

Mynd: Merki

Mynd: Merki
Sóknarmaðurinn Hallur Kristján Ásgeirsson hefur gengið til liðs við 1.deildarlið Fjölni frá Víkingi Ólafsvík. Hallur sem að er 25 ára á samkvæmt því sem við komumst næst Íslandsmetið í félagaskiptum og voru þetta sautjándu félagaskipti kappans síðan árið 1996.
Athygli vakti síðastliðið haust þegar að við hér á Fótbolti.net birtum fréttir þess efnis að Hallur hefði tilboð í höndunum frá gríska liðinu Larissa. Hallur hafnaði tilboðinu en lesa má fréttir okkar um málið með því að smella hér og
hér.
Hallur er ekki ókunnugur herbúðum Fjölnis en þar lék hann þegar að liði komst upp úr 3.deildinni sumarið 2002 og skoraði kappinn þá nítján mörk í tuttugu leikjum fyrir liðið. Hann hefur æft og leikið með Víkingi Ólafsvík í vetur en ákvað að fara í Fjölni og mun styrkja þá mjög.
Eins og fyrr segir á Hallur eftir því sem að við komumst næst Íslandsmetið í félagaskiptum en Vilberg Marinó Jónasson hjá Leikni F. er nú aðeins einu félagaskipti á eftir honum og náði Vilberg að jafna Hall í haust í skiptunum.
Það væri ekkert að gera í félagaskiptunum hjá KSÍ ef svona manna nyti ekki við.