Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, er í endurhæfingu vegna meiðsla sem hann varð fyrir í janúar.
Rashford meiddist á baki þegar hann kom inn á gegn Wolves í bikarnum og hefur hann ekki spilað síðan.
„Mér líður tíu sinnum betur. Nú þarf ég að gera mig tilbúinn til að byrja að æfa á ný og til að spila leiki fyrir liðið," sagði Rashford við Sky Sports.

„Ég er mikið ánægðari nú en fyrir mánuði síðan og er mikið ánægðari." Rashford hefur þurft að vinna í sínum málum heimafyrir vegna kórónaveirunnar.
„Við erum öll að gera okkar besta í þessum kringumstæðum. Það er ekkert sem kemst nálægt því að vera í búningsklefanum og með hópnum. Nún er ég bara að æfa heima, les bækur og horfi á Netflix."
Athugasemdir