Fotbolti.net
29.06.04 - 06:56
Hafliði Breiðfjörð

Giuly til Barcelona (Staðfest)

Giuly til Barcelona (Staðfest)
Canon
Barcelona gengu í gær frá kaupum á Ludovic Giuly frá Monaco. Giuly er 27 ára miðvallarleikmaður en hann gerði þriggja ára samning við spænska félagið. Hann sagði við undirskriftina:
,,Markmið mitt er að vinna titla með Barcelona. Ég er mjög ánægður með að vera hérna og vona að þjálfarinn og stuðningsmennirnir verði ánægðir með frammistöðu mína. Barcelona er eitt af stærstu liðum Evrópu og ég tel að ég geti passað vel í hópinn. Ég get ekki beðið eftir að byrja og hitta nýju liðsfélaga mína."

Giuly er eins og við sögðum í gær önnur kaup Barcelona í sumar á eftir Juliano Balletti sem kom frá Villareal en næstu kaup verða líklega Henrik Larsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.