29.06.04 - 09:25
Rothen og Yepes til PSG (Staðfest)

Jerome Rothen

Jerome Rothen

Paris Saint Germain eða PSG hafa eins og búst var við staðfest kaupin á þeim Jerome Rothen og Mario Yepes. Liðið hefur verið á höttunum eftir leikmönnunum í nokkurn tíma og lokisns er búið að ganga frá öllu.
Franski landsliðsmaðurinn Rothen kemur frá Monaco fyrir 10 milljónir Evra en Yepes kemur fyrir ótilgreinda upphæð frá Nantes. Yepes er frá Kólumbíu og skrifaði hann undir fjögurra ára samning. Rothen skrifaði einnig undir fjögurra ára samning og er hann mjög spenntur yfir því að leika fyrir PSG.
"Af því að ég er frá úthverfum Parísar hefur PSG alltaf verið liðið sem mig dreymdi að spila með" sagði Rothen. "París er ekki stökkpallur fyrir mig upp á framtíðina. Ég vil vinna titla hérna og halda áfram framförum mínum undir stjórn þjálfarans Vahid Halilhodzic."