Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 29. júní 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Síðasti leikur fyrir EM
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag þar sem sextán leikir eru á dagskrá auk síðasta æfingalandsleiks kvennalandsliðsins fyrir Evrópumótið á Englandi.


Íslenska landsliðið er í Póllandi um þessar mundir og verður síðasti undirbúningsleikur fyrir mótið gegn Pólverjum. Stelpurnar halda svo til Þýskalands í æfingabúðir og loks til Englands á EM.

Þá eru þrír leikir á dagskrá í Lengjudeild kvenna þar sem FH og Tindastóll eigast við í toppslag og svo á Grótta leik við Hamar í 2. deild og getur minnkað forskot Fram niður í eitt stig með sigri.

Í 2. deild karla er heil umferð á dagskrá þar sem topplið Njarðvíkur tekur á móti KF sem er um miðja deild.

Ægir og Þróttur R. eru í harðri baráttu þremur stigum eftir Njarðvík. Ægir tekur á móti fallbaráttuliði Hattar/Hugins á meðan Þróttur R. heimsækir Hauka í spennandi slag.

Að lokum eru sex leikir á dagskrá í 4. deildinni þar sem hart er barist í C- og D-riðli.

Æfingaleikur kvennalandslið:
13:30 Pólland - Ísland

Lengjudeild kvenna
18:30 Fjölnir-Víkingur R. (Extra völlurinn)
19:15 Grindavík-Fylkir (Grindavíkurvöllur)
19:15 FH-Tindastóll (Kaplakrikavöllur)

2. deild karla
18:00 Njarðvík-KF (Rafholtsvöllurinn)
18:30 Völsungur-ÍR (PCC völlurinn Húsavík)
19:15 Ægir-Höttur/Huginn (Þorlákshafnarvöllur)
19:15 KFA-Magni (Fjarðabyggðarhöllin)
19:15 Reynir S.-Víkingur Ó. (BLUE-völlurinn)
19:15 Haukar-Þróttur R. (Ásvellir)

2. deild kvenna
19:15 Hamar-Grótta (Grýluvöllur)

4. deild karla - C-riðill
20:00 KM-Álftanes (Kórinn - Gervigras)
20:00 Berserkir/Mídas-Hafnir (Víkingsvöllur)
20:00 Uppsveitir-Árborg (X-Mist völlurinn)
20:00 KB-Léttir (Domusnovavöllurinn)

4. deild karla - D-riðill
20:00 Smári-Hamar (Fagrilundur - gervigras)
20:00 Álafoss-GG (Tungubakkavöllur)


Athugasemdir
banner
banner
banner