Fotbolti.net
29.06.26 - 20:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Brann hefur áhuga á Kjartani

Brann hefur áhuga á Kjartani
Canon

Mynd: Aberdeen

Norska félagið Brann hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á Kjartani Má Kjartanssyni (2006). Kjartan Már er U21 landsliðsmaður sem er á mála hjá Aberdeen í Skotlandi.

Hann er miðjumaður sem Aberdeen keypti fyrir um ári síðan frá uppeldisfélaginu Stjörnunni.
Ræddi framtíð Kjartans hjá Aberdeen
TENGT EFNI

Ræddi framtíð Kjartans hjá Aberdeen

Tækifærin voru af skornum skammti á fyrsta tímabilinu í Skotlandi. Kjartan, sem var keyptur á 250 þúsund pund og skrifaði undir fjögurra ára samning, byrjaði þrjá leiki og kom fimm sinnum inn á sem varamaður. Hann lagði upp eitt mark í leikjunum átta.

Hjá Brann eru þrír íslenskir leikmenn. A-landsliðsmennirnir Sævar Atli Magnússon og Kristall Máni Ingason og svo er Eggert Aron Guðmundsson liðsfélagi Kjartans í U21 landsliðinu.

Brann situr sem stendur í 11. sæti norsku deildarinnar. Freyr Alexandersson var þjálfari Brann en hann var nýlega látinn fara og tók í kjölfarið við hjá Rosenborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.