Fotbolti.net
29.06.26 - 12:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"

Jökull Andrésson

Jökull Andrésson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var svekktur eftir leikinn gegn ÍBV í gær. FH komst yfir í leiknum með marki frá Úlfi Ágústi Björnssyni en annan leikinn í röð náði gestaliðið á Kaplakrikavelli að jafna.

Í leiknum gegn Þór fyrir rúmri viku síðan braut Kristján Flóki Finnbogason klaufalega af sér inn á eigin vítateig og Þór jafnaði úr vítaspyrnu. Í gær jafnaði Omar Sowe fyrir ÍBV eftir að hafa verið nýkominn inn á sem varamaður.

Markið kom eftir langa sendingu inn fyrir vörn FH, Jökull Andrésson í marki FH kom út á móti en náði ekki að hreinsa framhjá Sowe og boltinn fór af framherjanum og í markið.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 ÍBV
Í viðtali við Kolbein Kristinsson á Vísi sagði Jói Kalli að Jökull hefði gefið ÍBV markið, hann benti á að FH hefði nú í tveimur heimaleikjum í röð gefið mörk sem hefðu kostað liðið dýrkeypt stig.

„Þetta mark sem við gefum þeim í seinni hálfleik er náttúrulega alveg galið. Jökull á að gera betur, Arngrímur á að gera betur, barnaleg varnarvinna. Þetta er annar heimaleikurinn núna í röð, fyrst á móti Þór og svo núna þetta. Flóki gefur víti í síðasta leik og nú gefum við þetta mark klárlega. Jökull gefur þeim bara mark núna. Þetta er bara ekkert í boði. Við hefðum átt að fá tvo sigra, alveg klárt mál að mínu mati, drullu svekkjandi,“ sagði Jói Kalli eftir leikinn í gær og hrósaði í kjölfarið markverði ÍBV fyrir hans frammistöðu.

„Markmaðurinn hjá þeim varði hörkuvel. Mér fannst við líka alveg geta náð sigurmarkinu hérna í lokin," sagði Jói Kalli um Ara i Haraldstovu Petersen. Mörkin í gær má sjá í spilaranum hér að neðan. Viðtal Jóa Kalla við Fótbolta.net má nálgast þar fyrir neðan. FH komst með stiginu í gær upp fyrir Þór í 11. sæti deildarinnar.

Arngrímur Bjartur.

Arngrímur Bjartur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Kalli hrósaði Ara í marki ÍBV.

Jói Kalli hrósaði Ara í marki ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Jói Kalli svekktur og pirraður eftir leik - Ræðir einnig gluggann

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.13+3837
2KR13+1428
3Fram11+523
4Breiðablik12+619
5Valur13-219
6ÍA11-515
7Keflavík12-615
8Stjarnan13-314
9ÍBV12-512
10KA12-810
11FH12-137
12Þór12-217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.