Siggi Höskulds: Höfum rætt við hann eins og flest önnur félög

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór tapaði gegn Val í Bestu deildinni í gær en liðið er án sigurs í níu leikjum í röð og situr á botninum með sjö stig eftir 12 umferðir.
Þórsarar ætla að styrkja sig í félagaskiptaglugganum sem opnar 16. júlí. Félagið var á eftir Guðmundi Andra Tryggvasyni sem samdi við FH á dögunum. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var spurður út í Guðmund eftir leikinn gegn Val í gær.

„Það var tekin ákvörðun að fara ekki alla leið með það. Mér líður ágætlega með það, við erum að horfa í aðra möguleika og vonandi gengur Guðmundi Andra vel í FH," sagði Siggi.
Þá er Árni Vilhjálmsson eftirsóttur eftir komuna heim til Íslands en kærastan hans, Sara Björk Gunnarsdóttir, hefur samið við Hauka.
„VIð höfum rætt við hann örugglega eins og flest önnur lið. Ekkert dýpra en það."
Þá er von á að Aron Einar Gunnarsson komi heim í Þorpið en hann hjálpaði Þór í Lengjudeildinni sumarið 2024 og spilaði sex leiki og skoraði eitt mark.
„Ég býst við því að hann komi. Hann mun keyra hingað norður á morgun, hann gefur okkur innspýtingu bara með því að mæta á svæðið," sagði Siggi.
Hvaða stöður þarf að styrkja?
..Ég myndi halda að við tökum þrjá til fjóra leikmenn. Einn í hverri línu," sagði Siggi.