Man Utd fær bætur frá FIFA vegna Ugarte

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alþjóðafótboltasambandið, FIFA, mun greiða Manchester United bætur vegna meiðsla úrúgvæska miðjumannsins Manuel Ugarte.

TENGT EFNI
Slæmar fréttir fyrir Ugarte og Man Utd
Enska félagið greindi frá því fyrir skömmu að Ugarte hefði orðið fyrir liðbandsmeiðslum í hné og Fabrizio Romano segir að hann verði lengi frá keppni.
Meiðslin setja áætlanir United í uppnám en félagið hafði verið að íhuga að selja hann í sumarglugganum og nota féð til að styrkja miðsvæðið frekar.
Ugarte meiddist á meðan hann var á HM með úrúgvæska landsliðinu og því gæti Manchester United fengið bætur frá FIFA vegna meiðslanna. Það mun þó velta á því hversu lengi hann verður frá keppni.
Upphæðin sem United fær er bundin við laun leikmannsins og ef Ugarte verður frá í níu mánuði gæti félagið fengið um sex milljónir punda, sem það gæti mögulega nýtt í sumarglugganum.
Þetta er mögulegt í gegnum sérstakt regluverk FIFA, sem var sett á laggirnar til að vernda félög þegar leikmenn meiðast með landsliðum sínum. Regluverkið gildir út þetta ár áður en það verður endurskoðað.
FIFA skilgreinir alvarleg meiðsli sem tímabundna óvinnufærni og þá tekur tryggingakerfi sambandsins við. Þar sem Ugarte verður lengi frá uppfyllir United skilyrðin til að fá bætur.
Kerfið nær þó aðeins yfir laun upp að 120 þúsund pundum á viku, sem passar nákvæmlega við laun Ugarte hjá Manchester United, en hann er talinn vera með þá upphæð í vikulaun hjá enska félaginu.