Sveinn Aron æft með KR - „Efast um að hann verði leikmaður okkar í glugganum“

Komið víða við.

Mynd: Guðmundur Svansson

Komið víða við.

Mynd: Guðmundur Svansson
„Hann hefur æft með okkur í um mánuð en ég leyfi mér að efast um að hann verði leikmaður KR þegar glugginn opnar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, aðspurður um Svein Aron Guðjohnsen í viðtali við Fótbolta.net í gær.
Sveinn er sem stendur án samnings. Hann var síðast á mála hjá ítalska C-deildarliðinu Cavese, en hann gekk til liðs við félagið í upphafi árs frá Sarpsborg í Noregi.
Sveinn er sem stendur án samnings. Hann var síðast á mála hjá ítalska C-deildarliðinu Cavese, en hann gekk til liðs við félagið í upphafi árs frá Sarpsborg í Noregi.
Samkvæmt Transfermarkt skoraði Sveinn tvö mörk og lagði upp eitt í þrettán deildarleikjum með Cavese.
Sveinn hefur komið víða við frá því að hann hélt út frá Íslandi fyrir átta árum. Hann hefur spilað á Ítalíu, í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Noregi. Hérlendis hefur hann spilað með Breiðabliki, Val og HK.