29.07.26 - 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjölnir sækir þrjá leikmenn (Staðfest)

Mynd: Fjölnir/Toggi Media

Mynd: Fjölnir/Toggi Media
Fjölnir hefur fengið þrjá leikmenn til sín fyrir lok félagaskiptagluggans. Þeir Dagur Ingi Axelsson, Mikael Trausti Viðarsson og Ýmir Hjálmsson eru mættir í Grafarvoginn og ætla að hjálpa Fjölni að reyna komast upp úr 2. deild.
Fjölnir heimsækir Víking Ólafsvík í kvöld.
Helgi Snær Agnarsson er hins vegar farinn frá Fjölni og klárar tímabilið á láni með Reyni Sandgerði í 3. deild.

Tilkynning Fjölnis
Dagur Ingi Axelsson snýr aftur heim í Fjölni á láni frá HK út tímabilið. Dagur, sem er fæddur árið 2002 og uppalinn hjá Fjölni, hefur leikið átta leiki í Lengjudeildinni í sumar. Hann er öflugur bakvörður og kantmaður sem bætir bæði hraða, karakter og reynslu við leikmannahópinn.
Mikael Trausti Viðarsson kemur á láni frá ÍR út tímabilið. Áður en hann skipti framlengdi hann samning sinn við ÍR. Mikael er fæddur árið 2005, uppalinn hjá Fram og leikur sem hafsent og bakvörður. Hann kemur til félagsins til að styrkja varnarlínuna með krafti og áræðni.
Ýmir Hjálmsson gengur til liðs við Fjölni frá Völsungi. Hann hefur leikið sex leiki í Lengjudeildinni í sumar og hefur áður spilað með Njarðvík. Ýmir er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bæði stöður á miðjunni og í vörninni. Hann bætir við hópinn góðri tækni, hlaupagetu og leikskilningi.
Gunnar Már, þjálfari meistaraflokks karla, fagnar komu leikmannanna: „Við erum mjög ánægðir með að fá Dag, Mikael og Ými til liðs við okkur. Þeir koma allir með eigin styrkleika sem munu nýtast liðinu vel og styrkja okkur fyrir lokakafla tímabilsins. Þeir leysa þau skörð sem myndast hafa eftir að Þengill, Róbert og Fjölnir héldu til Bandaríkjanna í háskólanám og við hlökkum til að sjá þá leggja sitt af mörkum í baráttunni fram undan.“
Leikmennirnir eru spenntir fyrir komunni í Grafarvoginn.
Dagur Ingi segir: „Gott að vera kominn aftur heim og geta hjálpað liðinu að komast upp í Lengjudeildina. Allir á völlinn! Áfram Fjölnir.“
Mikael Trausti segir: „Það er gott að vera kominn í Fjölni og fá tækifæri til að leggja allt í þetta það sem eftir er af tímabilinu.“
Ýmir segir: „Ég er spenntur og ánægður með að fá þetta tækifæri. Mér líst vel á hópinn og þjálfarana og hlakka til að klæðast gulu treyjunni í baráttunni með Fjölni um sæti í Lengjudeildinni.“
Við bjóðum Dag, Mikael og Ými hjartanlega velkomna í Fjölni og óskum þeim góðs gengis í gulu treyjunni.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 14 | +17 | 29 |
| 2 | Selfoss | 14 | +6 | 26 |
| 3 | Kári | 14 | +15 | 24 |
| 4 | Fjölnir | 14 | +5 | 21 |
| 5 | Víkingur Ó. | 14 | -4 | 21 |
| 6 | Kormákur/Hvöt | 14 | +11 | 20 |
| 7 | Dalvík/Reynir | 14 | 0 | 20 |
| 8 | KFA | 14 | +6 | 17 |
| 9 | Magni | 14 | -17 | 15 |
| 10 | Þróttur V. | 14 | -7 | 13 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 14 | -8 | 13 |
| 12 | KFG | 14 | -24 | 13 |