Fotbolti.net
29.07.26 - 15:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Númi heim í Hauka (Staðfest)

Númi heim í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukar

Arnar Númi Gíslason er kominn heim í Hauka eftir sex ára fjarveru. Hann var síðast hjá Haukum 2020 en hefur síðan leikið með Breiðabliki, Fjölni, Gróttu og Fylki.

Vinstri bakvörðurinn kemur í Hauka frá Fylki og skrifar undir tveggja ára samning.

Númi kom við sögu í tíu leikjum í Lengjudeildinni og skoraði eitt mark og lék einnig í tveimur í Mjólkurbikarnum með Fylki í sumar.
Haukar fá fyrirliða 2. flokks Blika (Staðfest)
TENGT EFNI

Haukar fá fyrirliða 2. flokks Blika (Staðfest)

Haukar eru á toppi 2. deildar og eiga heimaleik gegn KFG í kvöld. Númi fær ekki leikheimild fyrr en eftir leikinn.

Tilkynning Hauka
Númi, sem er fæddur árið 2004, er uppalin í Haukum og er að koma heim aftur á Ásvelli frá Fylki þar sem hann spilaði m.a. í Bestu deildinni og Lengjudeildinni. Númi spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki í 2. deildinni árið 2020 með Haukum.

Þá á hann að baki 22 landsleiki með yngri landsliðum Íslands; 18 leiki með U19 og fjóra með U18.

Velkominn heim í Hauka Númi
Númi heim í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar14+1729
2Selfoss14+626
3Kári14+1524
4Fjölnir14+521
5Víkingur Ó.14-421
6Kormákur/Hvöt14+1120
7Dalvík/Reynir14020
8KFA14+617
9Magni14-1715
10Þróttur V.14-713
11Hvíti riddarinn14-813
12KFG14-2413
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.