Fotbolti.net
29.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson

Gregory Vignal til Rennes (staðfest)





Varnarmaður Liverpool, Gregory Vignal, er farinn frá félagi sínu til franska liðsins Rennes á eins árs lánssamningi. Vignal hefur ekki verið valinn í byrjunarliðið það sem af er þessari leiktíð og hefur því ákveðið að fara heim til Frakklands. Á síðustu leiktíð var Vignal í láni hjá Bastia í þrjá mánuði.

Gerard Houllier sagði á heimasíðu Liverpool: ,,Ég held að það muni gera honum gott að leika þessa leiktíð þarna"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.