Fotbolti.net
29.08.13 - 23:00
Magnús Þór Jónsson

Ejub: Þetta var gaman fyrst og fremst

Auglýsing
Ejub: Þetta var gaman fyrst og fremst
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ejub þjálfari Víkinga var bara nokkuð brattur þrátt fyrir að Futsalævintýrinu á Snæfellsnesi hafi lokið með 2-6 tapi fyrir Grikkjunum í Athina 90 í kvöld.



\"Þetta er bara svona, maður upplifði það að þetta var gaman fyrst og fremst.  Það var rosalega góð stemming og ég held að allir hafi haft gaman, bæði leikmenn og áhorfendur.\"
Ejub var sáttur við spilamennsku sinna manna.



\"Mér fannst við virkilega góðir í fyrri hálfleik og áttum kannski að vera einu til tveimur mörkum yfir.  En í seinni hálfleik skoruðu þeir strax mark og í kjölfarið kom það þriðja og það er rosalega erfitt gegn svona liði.



Ég held að ef við hefðum verið á undan að skora hefði sagan orðið öðruvísi!\"




Hann var fyllilega sáttur við það að blanda saman Futsal og því að vera að berjast í Pepsideildinni.



\"Ég hef sagt það áður að FH er að spila fullt af leikjum í Evrópukeppni og það hefur skapast virkilega góð stemming í kringum þetta verkefni, hugsaðu þér það var fullt hús tvisvar í röð og það var ómetanlegt, hvort það hjálpar okkur í framhaldinu verður bara að koma í ljós\"



Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.