29.08.26 - 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea tapaði 14 milljónum á Kellyman (Staðfest)

Mynd: Chelsea

Mynd: Chelsea
Chelsea er búið að selja sóknartengiliðinn Omari Kellyman tveimur árum eftir að hafa keypt hann úr röðum Aston Villa fyrir 19 milljónir punda.
Kellyman stóðst alls ekki þær væntingar sem til hans voru gerðar á Brúnni og skiptir yfir til systurfélagsins Strasbourg fyrir 5 milljónir.
Kellyman er tvitugur og skrifar undir fimm ára samning í Frakklandi, aðeins tveimur árum eftir félagaskiptin sín til Chelsea.
Hann er tíundi leikmaðurinn sem Strasbourg fær í sínar raðir í sumar eftir að hafa nælt í menn á borð við Karim Coulibaly, Diogo Sousa, Giovanni Reyna og Filip Jörgensen.
Strasbourg þarf að endurbyggja leikmannahópinn sinn eftir að hafa misst fimm byrjunarliðsmenn í sumar fyrir tæpar 150 milljónir punda.

Some dates remain forever etched in Racing’s history…
— Racing Club de Strasbourg Alsace English (@RCSA_English) August 25, 2026
????????/????????/???????????????? ????
? #120YearsOfPassion pic.twitter.com/MBUyeKZkzF