Fotbolti.net
29.08.26 - 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Leao kominn til Galatasaray (Staðfest)

Leao kominn til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska stórveldið Galatasaray er búið að kynna Rafael Leao til leiks sem nýjan leikmann félagsins.
Leao á leið til Galatasaray
TENGT EFNI

Leao á leið til Galatasaray

Hann kemur úr röðum AC Milan fyrir um 45 milljónir evra og gerir fjögurra ára samning við Tyrklandsmeistarana.

Leao gerði frábæra hluti hjá Milan og var valinn besti leikmaður Serie A deildarinnar tímabilið 2021-22. Þar að auki var Leao valinn í lið ársins í Serie A næstu tvö tímabil þar á eftir.

Leao er 27 ára gamall og á 49 landsleiki að baki fyrir Portúgal. Hann kom í heildina að 145 mörkum með beinum hætti í 291 leik með AC Milan og var á köflum eftirsóttur af ýmsum stórveldum víða um Evrópu.

Það verður spennandi að fylgjast með Leao spila í sömu sóknarlínu og Victor Osimhen og Leroy Sané sem eru einnig á mála hjá Galatasaray.

Leao kominn til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.