Fotbolti.net
29.08.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Morata kominn aftur heim (Staðfest)

Morata kominn aftur heim (Staðfest)
Canon

Mynd: Como

Alvaro Morata er genginn til liðs við Leganes á láni út tímabilið frá Como.
Leganes er staðsett á Madrídarsvæðinu þar sem Morata er fæddur. Morata sagði frá því að fyrsti leikurinn sem hann fór á var leikur Leganes gegn Atletico Madrid. Hann varð síðan boltastrákur hjá Leganes í kjölfarið.

Þessi 33 ára gamli sóknarmaður segist vilja finna gamla góða formið aftur en hann var ekki í plönum Cesc Fabregas, stjóra Como.

Leganes spilar í B-deildinni á Spáni en liðið er með fjögur stig eftir tvær umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.