Julian Nagelsmann er undir mikilli pressu en það hefur ekki gengið sem skyldi hjá Bayern Munchen á þessari leiktíð.
Liðið er í 5. sæti eftir sjö umferðir, fimm stigum á eftir toppliði Union Berlin.
Stjórn Bayern hefur stigið fram og stutt við bakið á Nagelsmann og hann segist sjálfur ekki ætla að segja af sér.
„Ég er ekki að hugsa um að segja af mér. Ég vil ekki tapa leikjum, ég vil verða þýskur meistari aftur. Ég vil líka komast lengra í Meistaradeildinni og þýska bikarnum en í fyrra," sagði Nagelsmann.
Bayern fær Leverkusen í heimsókn í fyrsta leik 8. umferðar annað kvöld.
Athugasemdir