29.09.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Átti leynifund með Sir Alex Ferguson

Patrick Vieira.

Mynd: EPA

Patrick Vieira.

Mynd: EPA
Patrick Vieira hefur greint frá því að hann hafi átt leynilegan fund með Sir Alex Ferguson um möguleg félagaskipti til Manchester United á meðan hann lék með Arsenal.
Vieira var lykilmaður í liði Arsenal á sínum tíma og átti í eftirminnilegri deilu við Roy Keane, fyrirliða Manchester United.

Ferguson hafði hins vegar áhuga á að fá Frakkann til United og vildi byggja miðju liðsins í kringum þá tvo.
„Ég átti fund með Sir Alex Ferguson. Hann útskýrði fyrir mér sýn sína á Manchester United og liðið sem hann vildi byggja,“ sagði Vieira í samtali við Sky Sports.
„Hann vildi spila með mig og Roy Keane á miðjunni, Ryan Giggs vinstra megin, David Beckham hægra megin og Paul Scholes fyrir aftan Ruud van Nistelrooy. Þetta var ekki slæmt lið.“
Vieira ákvað hins vegar að yfirgefa ekki Arsenal. Talið er að fundurinn hafi átt sér stað í kringum 2003, þegar United var sterklega orðað við Vieira. Hann átti þá aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal.
Vieira varð svo fyrirliði Arsenal þegar liðið vann úrvalsdeildina tímabilið 2003/04 án þess að tapa leik.