29.09.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City gefur út yfirlýsingu: Vonsvikin og undrandi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City hefur gefið út yfirlýsingu í kjölfarið á því að enska úrvalsdeildina staðfesti niðurstöðu óháðrar nefndar varðandi brot félagsins á fjármálareglum deildarinnar.
David Ornstein, blaðamaður The Athletic, sagði frá því síðasta föstudag að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum en í tilkynningu ensku úrvalsdeildarinnar segir að félagið hafi verið fundið sekt í „öllum ákæruliðum".

Félagið hefur rétt til að áfrýja niðurstöðu óháðu nefndarinnar og hefur frest til föstudagsins 2. október til að nýta þann rétt.
„Manchester City er bæði vonsvikið og undrandi á niðurstöðu nefndar úrvalsdeildarinnar sem var birt í dag," segir í yfirlýsingu Man City.
Félagið er saklaust af þeim ásökunum sem úrvalsdeildin hefur lagt fram og yfirgripsmiklar og óyggjandi sannanir styðja þá afstöðu í málinu. Félagið mun því halda áfram baráttu sinni og, þar sem nauðsyn krefur, taka virkan þátt í öllum viðeigandi eftirlits- og lagalegum ferlum.
„Ferli úrvalsdeildarinnar er enn í gangi og mikilvægum þáttum þess er enn ólokið."
City telur að niðurstaðan gefi ekki rétta mynd á málinu og ætlar að áfrýja.
„Manchester City mun nú nýta sér þær leiðir til áfrýjunar sem félaginu standa til boða, þar sem niðurstaðan innihaldi að mati félagsins verulegar villur hvað varðar lög, grundvallaratriði og staðreyndir og sé því ekki traust."
„Félagið hefur virt réttlátt málsmeðferðarferli í átta ár á þeim grundvelli að stjórn og framkvæmdastjórn úrvalsdeildarinnar myndu starfa sem óháður, hlutlaus og sanngjarn eftirlitsaðili, án utanaðkomandi áhrifa. Félagið er augljóslega takmarkað í því hvað það getur sagt frekar þar til öllum frekari málsmeðferðum er lokið," segir einnig í yfirlýsingunni.