Fotbolti.net
29.10.04 - 16:43
Magnús Már Einarsson

Gummi Ben og Kjartan Sturluson í Val (Staðfest)

Guðmundur Benediktsson.

Guðmundur Benediktsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Guðmundur Benediktsson og Kjartan Sturluson eru báðir gengnir til liðs við Val en þetta var tikynnt á blaðamannafundi í Valsheimilinu nú rétt í þessu.
Kjartan er 28 ára markvörður sem að hefur leikið með Fylki alla tíð en var ekkert með í sumar þar sem að hann var í námi á Ítalíu.

Kjartan skrifaði undir tveggja ára samning við Val en þar mun hann berjast um markvarðarstöðuna við Ólaf Þór Gunnarsson, Kristinn Geir Guðmundsson og Ögmund Rúnarsson. Fótbolti.net greindi einmitt fyrstir fjölmiðla frá því í september að Kjartan myndi líklega leika aftur á Íslandi árið 2005 og sú verður raunin.

Guðmundur sem að er sóknarmaður kemur frá KR en hann hefur leikið með Vesturbæjarliðinu frá 1998, reyndar með hléum vegna meiðsla auk þess sem að hann stoppaði um tíma í Englandi og Belgíu.

Guðmundur sem að er þrítugur skrifaði undir tveggja ára samning við Val í en hann skoraði tvö mörk í tólf leikjum með KR í efstu deild í sumar. Hjá Val hittir hann Willum Þór Þórsson sem að þjálfaði KR seinustu ár eins og flestir vita og verður spennandi að fylgjast með Völsurum næsta sumar.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Guðmundi (Febrúar 2003)
Hin Hliðin á Kjartani (Júní 2003)

Okkar menn voru á fundinum og eru myndir og viðtöl frá þeim væntanlega á næstunni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.