Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. október 2022 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: KSÍ 
Vanda á fundi UEFA: Þarf að fjölga konum í stjórn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, var stödd í Frankfurt í Þýskalandi þegar dregið var í riðla fyrir undankeppni EM karla 2024 fyrr í október.


Það voru haldnar vinnustofur og fundir í tengslum við dráttinn og þar á meðal var fundur formanna og framkvæmdastjóra knattspyrnusambanda innan UEFA.

Vanda flutti erindi á fundinum þar sem viðfangsefnið var fjölgun kvenna í nefndum og stjórn UEFA. Þar benti hún á að í 19 nefndum á vegum UEFA eru samtals 394 nefndarmenn og aðeins 52 þeirra (13%) eru konur. Þar af sitja 18 af þessum 52 konum í sérstakri nefnd UEFA um kvennaknattspyrnu.

„Ég hef unnið að þessu viðfangsefni mánuðum saman og ræddi málið við forseta UEFA í apríl á þessu ári. Ég tók þetta einnig upp á fundi Norðurlandanna í ágúst og fékk fullan stuðning við að taka málið áfram á vettvangi UEFA," sagði Vanda á fundinum.

„Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð hjá KSÍ þar sem 47% nefndarmanna eru konur, og svo má líka geta þess að hlutfall kvenna á meðal þingfulltrúa á ársþingum okkar hefur vaxið stöðugt síðustu ár og aldrei hafa fleiri konur setið þingið en í febrúar á þessu ári, fyrir það ber að hrósa aðildarfélögum KSÍ.”

Í framhaldi af fundinum var ákveðið að stofna starfshóp sem hefur nú þegar verið skipaður.

„Það er einlæg von okkar hjá KSÍ og mörgum öðrum knattspyrnusamböndum að þessi vinna verði til þess að konum fjölgi í nefndum og stjórn UEFA. Raddir kvenna þurfa að heyrast þar sem ákvarðanir eru teknar og það er mín upplifun að það sé einnig vilji UEFA.”


Athugasemdir
banner
banner
banner