29.10.26 - 11:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fylkir fær greiðslu frá ÍA - Furðuleg tilkynning
Umfjöllun

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir gaf í gær út yfirlýsingu þess efnis að félagið hefði slitið samstarfi við Heimi Guðjónsson en hann er á leið í ÍA eftir að hafa stýrt Fylki í eitt ár.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun Fylkir fá greiðslu frá ÍA fyrir Heimi og því einkennilegt að tala um að félagið sé að slíta samstarfinu við þjálfarann, hann er einfaldlega keyptur í annað félag.

TENGT EFNI
Fylkir staðfestir brotthvarf Heimis
Í sömu yfirlýsingu er talað um þátt fjölmiðla og hlaðvarpa og þeim í raun kennt um að þetta sé niðurstaðan.
„Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson," segir í yfirlýsingunni.
Heimir er risastórt nafn í íslenskum fótbolta, enginn þjálfari hefur unnið jafn marga Íslandsmeistaratitla. Hann var að stýra félagi í Lengjudeildinni, næstefstu deild. Það er eðlilegt að hann sé orðaður við störf hjá stærri félögum, félögum í deild ofar, þegar þau eru laus, og sérstaklega þegar hann hefur rætt um þau félög sjálfur eins og í dæmi Stjörnunnar sem Heimir persónulega hafði fyrir því að skjóta á í viðtölum síðasta vetur.
Hann er líka fyrrum leikmaður hinna tveggja félaganna sem hann hefur verið orðaður við, ÍA og KA, tengingarnar eru til staðar.
Þessi orð í yfirlýsingunni eru sérkennileg í meira lagi.