Fotbolti.net
30.01.04 - 00:00

Scott Parker til Chelsea (STAÐFEST)

Scott Parker til Chelsea (STAÐFEST)
Canon
Chelsea munu halda blaðamannafund í dag þar sem Scott Parker verður kynntur sem nýjasta viðbótin í lúxuslið Chelsea þar sem varla er orðið þverfótað fyrir stórstjörnum.
Parker mun kosta um 10 milljónir punda og Carlton Cole verður líka í ár áfram hjá Charlton sem hluti af samningnum. Eins og við greindum frá í gær tóku Charlton loksins tilboði Chelsea í þriðja skipti sem buðu í Parker en upphaflega tilboð hljóðaði upp á 7,5 milljónir punda. Hægt er að lesa fréttina hér.

Chelsea lagði mikla áherslu á að klára að skrifa undir samninginn áður en félagaskiptaglugganum lokar klukkan 17:00 á mánudaginn. Ekki fannst þeim síður mikilvægt að klára málið fyrir klukkan 11:00 á mánudaginn þegar fresturinn til að tilkynna nýja leikmenn til þátttöku í evrópukeppnum en Chelsea mætir Stuttgart í næsta mánuði í Meistaradeildinni.

Hann gæti spilað fyrsta leikinn sinn fyrir Chelsea á sunnudaginn gegn Blackburn ef Chelsea tilkynna hann til FA fyrir hádegi á morgun. Þetta er mikill styrkur fyrir Chelsea enda er Parker einn af framtíðarmönnum í enska landsliðinu sem hann hefur þegar verið viðloðinn. Það er spurning hver dettur út úr byrjunarliðinu ef Parker kemst í það? Hver treystir sér til að velja? Lampard? Makelele? Joe Cole?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.