30.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Portsmouth fær Olszar og Mornar (Staðfest)

Ivica Mornar (til vinstri)

Ivica Mornar (til vinstri)

Portsmouth hefur fengið tvo sóknarmenn, Ivica Mornar frá Anderlecht og pólska sóknarmanninn Sebastian Olszar. Króatinn, Mornar sem er þrítugur kostaði Anderlecht 400 þúsund pund og skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning en Olszar sem er 22 ára kom frítt til Portsmouth og skrifaði undir samning til lok tímabilsins.
Þeir munu líklega báðir fara beint inn í leikmannahóp Portsmouth gegn Wolves en Teddy Sheringham er eini leikfæri framherjinn ásamt þessum nýju mönnum þar sem að Aiyegbeni Yakubu er á Afrikumótinu og aðrir framherjar Portsmouth eru meiddir.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth hefur verið duglegur á leikmannamarkaðnum í janúar og auk þess að fá Mornar og Olszar til liðsins þá hafa Petri Pasanen, Eyal Berkovic og Richard Duffy einnig komið til Portsmouth.