Miðjumaðurinn Charlie Webster, sem er talinn einn sá efnilegasti í sínum aldursflokki, er búinn að framlengja samning sinn við Chelsea um eitt ár, eða til sumarsins 2024.
Webster fagnar 19 ára afmælisdeginum sínum á morgun og vill ekki binda sig niður til langs tíma.
Hann á 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og hefur verið umtalaður sem ný vonarstjarna Englands.
Webster er lykilmaður í varaliði Chelsea og er kominn með 5 mörk í 14 leikjum í varaliðadeildinni, leikjandi á miðjunni.
Hann er bæði góður varnarlega og sóknarlega og hefur einnig verið notaður úti á vinstri kanti, en þó örsjaldan.
Athugasemdir