Fotbolti.net
30.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Steinarsson til Keflavíkur (Staðfest)

Guðmundur Steinarsson til Keflavíkur (Staðfest)
Canon
Keflvíkingar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið því að Guðmundur Steinarsson hefur gengið til liðs við liðið eftir að hafa dvalið í Danmörku. Guðmundur sem að leikur oftast sem framherji eða vinstri kantmaður hefur leikið með danska liðinu Bronshöj undanfarna tvo vetur en síðastliðið sumar lék hann með Fram í Landsbankadeildinni og lék hann þrettán leiki og skoraði ekkert mark.
Árið 2002 lék hann með Keflavík og skoraði fimm mörk í 18 leikjum í Símadeildinni og árinu áður skoraði hann sex mörk í sautján leikjum.

Guðmundur skoraði þó mest sumarið 2000 með Keflavík en þá skoraði hann fjórtán mörk og var næstmarkahæsti maður deildarinnar á eftir Andra Sigþórssyni en reyndar skoruðu þeir jafnmörg mörk en Guðmundur lék fleiri leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.