Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. mars 2021 06:00
Victor Pálsson
James: Ég á meira inni
Mynd: Getty Images
James Rodriguez, leikmaður Everton, lofar því að hann eigi meira inni eftir annars ágætis fyrsta tímabil á Goodison Park.

James Rodriguez, leikmaður Everton, lofar því að hann eigi meira inni eftir annars ágætis fyrsta tímabil á Goodison Park.

James kom til Everton frá Real Madrid síðasta sumar og hefur lagt upp fjögur mörk í 18 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Meiðsli hafa sett strik í reikning miðjumannsins sem hefur ekki spilað með liðinu síðan gegn Liverpool þann 20. febrúar.

„Ég er nokkuð ánægður með hvernig ég er að spila. Ég á þó meira inni og get spilað betur," sagði Rodriguez.

„Þegar ég hef spilað vel þá hefur það haft jákvæð áhrif á liðið. Það er það sem ég vil: að liðið spili góðan fótbolta í hæsta gæðaflokki."

„Það hefur verið mjög auðvelt að aðlagast hérna. Ég kom í góðan klúbb sem vill afreka stóra hluti."
Athugasemdir
banner
banner
banner