„Þegar ég horfi á þetta að þá var þetta ansi þurrt, lítil ástríða og við með litla stjórn á hlutunum.“
„Fótboltalega var hann ekkert leikmaður sem smellpassaði í liðið en sem karakter var hann eitthvað sem okkur vantaði.“
Stjarnan endaði í þriðja sæti í Bestu deildinni á síðustu leiktíð. Liðið var í baráttu við Víking og Val um toppsætið þegar tvískiptingin hófst en þar fjaraði undan hjá Garðbæingum og vann liðið ekki leik í tvískiptingunni.
Stjarnan tryggði sér naumlega Evrópusæti með því að tapa 2-3 gegn Breiðabliki í lokaleik deildarinnar. Stjarnan mátti tapa með einu marki svo að þriðja sætið væri þeirra.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn þar sem hann fór ítarlega yfir síðasta tímabil.
Stjarnan tryggði sér naumlega Evrópusæti með því að tapa 2-3 gegn Breiðabliki í lokaleik deildarinnar. Stjarnan mátti tapa með einu marki svo að þriðja sætið væri þeirra.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn þar sem hann fór ítarlega yfir síðasta tímabil.
Ólíkir sjálfum sér
„Síðasta tímabil heilt yfir var ólíkt okkur. Fótboltinn sem við spiluðum var orðinn aðeins passívari. Það var kafli fyrri hluta móts þar sem við litum helvíti vel út, vorum að spila skemmtilegan fótbolta. Svo breyttist það aðeins, breytingar á hópnum í sumarglugganum.
Við fengum nokkra nýja leikmenn inn og við fórum svolítið frá fótboltanum sem við höfum viljað spila og höfðum trú á. Það var meira 'coin flip' á úrslitum. Við höfum alltaf verið að æfa liðið með það að markmiði að hafa stjórn á eigin örlögum. En þegar ég horfi á þetta að þá var þetta ansi þurrt, lítil ástríða og við með litla stjórn á hlutunum. Við komumst á skrið í fimm leikjum en samt var þetta eins og að við værum að kasta upp á leikina.“
Lét égóið ekki standa í vegi fyrir hörkunni
Hvaðan kom þá þessi passívi fótbolti?
„Við förum og vinnum leiki með því að harka. Það eru alls konar ástæður fyrir því. Við fórum í leik gegn Vestra með fjóra í banni og einhverja meidda. Við unnum leikinn og mönnum leið vel með það, því við höfðum lítið verið í því. Í kjölfarið kemur KR-leikurinn í Vesturbænum.
Sem er sennilega okkar slakasti leikur ásamt leiknum í Eyjum. Við hörkum sigur út úr honum og við finnum að það eru einhverjir sem fíla það að ná harkinu. Ég lét égóið ekki standa í vegi og hugsaði ókei, sjáum aðeins hvert þetta leiðir okkur. Ég vaknaði svolítið við vondan draum undir lok tímabils, þar sem að þetta var ekki skemmtilegt. Það var ekki gaman að horfa á liðið. Í úrslitakeppninni var þetta 'coin flip'. Við tókum U-beygju fyrir síðasta leik og spiluðum góðan leik gegn Blikum þó að við höfum endað á að tapa honum. Menn fóru svolítið peppaðir eftir þennan leik, þeir fundu að við vorum komnir aftur í okkar.“
Caulker-áhrifin
Jökull var spurður hvort að koma Steven Caulker hafi spilað einhverja rullu í breyttum leikstíl Stjörnunnar.
„Hann hefur auðvitað ekki verið mikið í því að spila aggressívan sóknarfótbolta. Koma hans var frábær að mörgu leyti. Hann kom með mikla þekkingu, mikla reynslu, góða nærveru og var góður þjálfari úti á velli.
Fótboltalega var hann ekkert leikmaður sem smellpassaði í liðið en sem karakter var hann eitthvað sem okkur vantaði. Þó svo að varnarleikurinn okkar hafi ekkert skánað eftir að hann kom þá held ég að til lengri tíma munum við græða á varðandi varnarleikinn. Hans vinna var ekki byrjuð að skila sér en mun gera það.“
Athugasemdir




